VIÐHALD FJÖLBÝLISHÚSA:
Viðhald og viðgerðir á steinsteypu er fagvinna sem krefst sérþekkingar.
Háþrýstihreinsun og vönduð undirvinna er ekki síður mikilvæg en rétt val á viðgerðarefnum og faglegri vinnu. Vanþekking veldur oft miklu tjóni.
En það er ekki vænlegt að skoða aðeins einn verkþátt viðgerða. Fara þarf yfir allt ytra byrði hússins. Meta þarf ástand steypu, glugga, þaks, málningar og alls þess er máli skiptir til að geta boðið heildstæðar lausnir varðandi viðgerðarþörf, og meta hvaða kostir eru raunhæfir og í boði.
VIÐ GETUM BOÐIÐ UPP Á:
- Öflugan háþrýstiþvott.
- Vandaðar steypuviðgerðir
- Þéttmúrkerfi
- Gluggaviðgerðir
- Þakviðgerðir
- Málningarvinnu
- Sandblástur
- Allar viðhaldsframkvæmdir
- Góðan tækjabúnað.
- Förum hvert á land sem er.
Það þarf ekki að vera kostnaðarsamt að semja við öflugan og traustan verktaka.
Við bjóðum upp á vandaðar & varanlegar lausnir í viðhaldi húseigna á sanngjörnum verðum. Við erum ekki að bjóða upp á ódýrar töfralausnir heldur viljum við að vinna okkar endist. Það er alltaf hagstæðast þegar upp er staðið.
ÞAÐ GETUR VERIÐ VANDASAMT AÐ VELJA RÉTTAN VERKTAKA ÞEGAR FARA Á Í FRAMKVÆMDIR
Þessi markmið okkar hafa skilað því að við eigum fasta trausta viðskiptavini sem velja að eiga viðskipti við okkur ár eftir ár. Ef þetta eru kostir sem þú telur henta fyrir þín viðhaldsmál þá endilega vertu í sambandi við okkur.
Nánari upplýsingar:
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.